1. gr.
Gjald fyrir hreindýraveiðileyfi.
Náttúruverndarstofnun innheimtir gjald fyrir úthlutun hreindýraveiðileyfa.
Gjaldið skal vera:
|
|
|
Fjárhæð kr. |
|
a. |
Fyrir tarf á svæðum 1 til 9 |
231.600 |
|
b. |
Fyrir kú á svæðum 1 til 9 |
132.000 |
2. gr.
Gildistaka og lagastoð.
Gjaldskrá þessi sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 340/2024 um hreindýraveiðileyfi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. febrúar 2025.
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
|