Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti 19. nóvember 2020 deiliskipulag fyrir fallvatnsvirkjun við Múlaá í Garpsdal. Um er að ræða rennslisvirkjun án allrar miðlunar og nýtanleg fallhæð verður 84 m og uppsett afl allt að 950 kW. Deiliskipulagssvæðið er um 7 ha að flatarmáli á skilgreindu iðnaðarsvæði I4 í gildandi aðalskipulagi. Ofangreind skipulagsáætlun hefur hlotið meðferð skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. sveitarstjórnar Reykhólahrepps, 6. apríl 2021,
Þórður Már Sigfússon skipulagsfulltrúi.
|