Hinn 6. apríl 2018 var Evrópusambandinu afhent staðfestingarskjal Íslands vegna samnings milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs, sem gerður var í Vínarborg 28. júní 2006.
Við afhendingu staðfestingarskjalsins voru lagðar fram ákveðnar tilkynningar og yfirlýsingar fyrir Íslands hönd í samræmi við 2. mgr. 38. gr. samningsins.
Samningurinn öðlast gildi 1. nóvember 2019.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari og tilkynningarnar og yfirlýsingarnar sem fylgiskjal 2.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 1. nóvember 2019.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|