1. gr.
Gjaldskrá þessi gildir fyrir orkuveitusvæði Hitaveitu Dalvíkur. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts og orkuskatts.
2. gr.
Viðmiðunarhitastig gjaldskrár er 25°C.
Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:
a) |
Orkugjald skv. orkumæli |
kr. |
3,05 |
pr. kWst. |
b) |
Orkugjald skv. orkumæli sundlauga |
kr. |
1,525 |
pr. kWst. |
c) |
Lokunargjald |
kr. |
8.704 |
|
Þeim viðskiptavinum Hitaveitu Dalvíkur sem nota meira 10.006.000 kWst. á ári er veittur 30% afsláttur af gjaldskrá.
3. gr.
Viðskiptavinir skulu greiða fast gjald í formi mælaleigu, gjaldið er daggjald og er breytilegt eftir stærð mæla. Mælaleigan er sem hér segir:
Stærð mælis |
Mælagjald í kr. á dag |
15 mm |
41,66 |
20 mm |
55,82 |
25 mm |
83,13 |
40 mm |
104,33 |
50 mm |
130,60 |
65 mm |
147,09 |
80 mm |
166,02 |
100 mm |
187,36 |
4. gr.
Heimæðagjald Hitaveitu Dalvíkur skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:
Fyrir hús allt að 400 m³ að utanmáli og heimæð allt að 50 m |
kr. |
417.697 |
og á hvern m³ þar yfir |
kr. |
525 |
og á hvern m fram yfir 50 m |
kr. |
9.141 |
Rúmmál húsa miðast við stærðir samkvæmt reglum um skráningu fasteigna hjá Þjóðskrá Íslands. Heimæðagjöld skal reikna af öllu húsrými á viðkomandi lóð, hvort sem það verður tengt hitaveitunni eða ekki.
Heimæðagjald hitaveitu fyrir útihús tengd landbúnaði skal vera með eftirfarandi hætti:
a. |
Fyrir mjólkurhús/fjós skal greiða lágmarksgjald |
kr. |
417.697 |
b. |
Fyrir hesthús að 700 m³ skal greiða lágmarksgjald. Aðilum er heimilt að sameinast um inntak. |
|
|
Ef um er að ræða lagnir í dreifða byggð eða samkvæmt sérsamningi er vísað til 17. gr. reglugerðar fyrir Hitaveitu Dalvíkur. Gjald þetta skal þó aldrei vera lægra en nemur lágmarks heimæðagjaldi hitaveitunnar.
5. gr.
Heimæðagjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2022, 173,0 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.
6. gr.
Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með 10 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni kr. 8.704.
7. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, til að taka gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1614/2021.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. janúar 2023.
F. h. r.
Sigríður Svana Helgadóttir.
|