Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, frístundasvæði Öldubyggð, Svínavatn. Gildandi skipulag gerir ráð fyrir einum bústað á hverri lóð að hámarki 200 m² að stærð ásamt útigeymslu eða svefnhúsi þar sem hámarksflatarmál skal vera 25 m². Breytingin felur í sér að á hverri lóð er heimilt að reisa eitt aðalhús og eitt aukahús (gestahús eða geymslu). Hámarksbyggingarmagn lóðar miðast við nýtingarhlutfallið 0,03 og þar af má aukahús vera allt að 40 m². Þakgerð, efnisval og mænishæð húsa er frjálst. Grein 8 í skipulagsskilmálum fellur út. Samþykkt í sveitarstjórn 6. febrúar 2019.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 8. ágúst 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
|