Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1260/2022

Nr. 1260/2022 8. nóvember 2022

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar vegna nýs hreinsivirkis og frárennslis, göngu- og hjólreiðastíga og stækkun golfvallar.

Skipulagsstofnun staðfesti 8. nóvember 2022 breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2031, sem samþykkt var í bæjarstjórn 17. ágúst 2022.
Í breytingunni felst að fyrirhuguð hreinsistöð á Hópsnesi er færð til austurs inn á hafnarsvæði H2 og frárennsli frá henni fer til suðurs meðfram vegi á Hópsnesi og þaðan út í sjó. Íþróttasvæði ÍÞ2 er stækkað til austurs í samræmi við núverandi golfvöll og jafnframt er stækkun fyrirhuguð til vesturs norðan vegar. Göngu- og hjólreiðastígur er jafnframt framlengdur meðfram Nesvegi að Grinda­víkur­vegi.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 8. nóvember 2022.

 

Ólafur Árnason.


B deild - Útgáfud.: 22. nóvember 2022