Hinn 1. mars 2011 var aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna afhent aðildarskjal Íslands ásamt yfirlýsingu vegna samnings Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu sem gerður var í New York 31. október 2003. Alþingi hafði með ályktun nr. 27/138 hinn 6. september 2010 heimilað ríkisstjórninni að gerast aðili að samningnum. Samningurinn öðlaðist gildi 31. mars 2011.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari og yfirlýsingin sem fylgiskjal 2.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|