Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti er störfum þannig skipt með ráðherrum:
1. gr.
Forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið forsætisráðherra.
2. gr.
Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skv. 3.–6. tölul., b–m-liðum 10. tölul. og 11. tölul. 2. gr. og mennta- og menningarmálaráðuneytið skv. 5. og 7. tölul. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra.
3. gr.
Félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félagsmálaráðuneyti skv. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.
4. gr.
Fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.
5. gr.
Heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið heilbrigðisráðherra.
6. gr.
Innanríkisráðherra.
Jón Gunnarsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innanríkisráðherra.
7. gr.
Innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skv. 1.–8. tölul. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innviðaráðherra.
8. gr.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Svandís Svavarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skv. 1. og 7.–9. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
9. gr.
Mennta- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið skv. 1., 2. og 11.–17. tölul. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra.
10. gr.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið skv. 6. tölul. 7. gr. og umhverfis- og auðlindaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
11. gr.
Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
12. gr.
Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skv. 2. tölul. og a-, n- og o-liðum 10. tölul. 2. gr., mennta- og menningarmálaráðuneytið skv. 3., 4., 8.–10. og 18. tölul. 7. gr. og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skv. 9. tölul. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
13. gr.
Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. Með úrskurði þessum fellur úr gildi úrskurður nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra, með síðari breytingum.
Gjört á Bessastöðum, 28. nóvember 2021.
Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)
|