Hinn 22. október 2009 var undirritað í Lundúnum samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands. Samkomulaginu var beitt til bráðabirgða frá og með 1. janúar 2010. Með ályktun 18. maí 2010 heimilaði Alþingi ríkisstjórninni að staðfesta samkomulagið.
Samkomulagið er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|