Hinn 17. febrúar 2014 var danska utanríkisráðuneytinu afhent staðfestingarskjal Íslands vegna Norðurlandasamnings um almannatryggingar sem gerður var í Bergen 12. júní 2012. Alþingi hafði hinn 15. mars 2013, með þingsályktun nr. 20/141, heimilað ríkisstjórninni að staðfesta samninginn. Samningurinn öðlaðist gildi 1. maí 2014.
Samtímis féll úr gildi eldri Norðurlandasamningur um almannatryggingar frá 18. ágúst 2003. Sá samningur var birtur í C-deild Stjórnartíðinda með auglýsingu nr. 51/2004.
Nýi Norðurlandasamningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 21. júlí 2021.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|