1. gr.
Með vísan til 3. mgr. 20. gr. reglugerðar um nemendur með sérþarfir í grunnskóla, nr. 585/2010, sbr. breytingu nr. 148/2015, hefur mennta- og menningarmálaráðherra hinn 20. ágúst 2019 staðfest reglur um innritun og útskrift nemenda úr sérdeild Suðurlands. Reglurnar eru birtar sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Reglurnar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar hinn 21. febrúar 2018.
2. gr.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi starfsreglur um innritun og útskrift nemenda úr sérdeild Suðurlands, dagsettar 20. maí 2014.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 20. ágúst 2019.
Lilja D. Alfreðsdóttir.
Ásta Magnúsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|