Hinn 7. desember 2006 var ráði Evrópusambandsins tilkynnt um samþykki Íslands á ákvörðun ráðsins nr. 2006/560/DIM frá 24. júlí 2006 um breytingu á ákvörðun 2003/170/DIM um samnýtingu tengifulltrúa sem sendir eru til starfa erlendis af stofnunum sem framfylgja lögum í aðildarríkjunum, sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur gerðu með sér 18. maí 1999 um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Breytingin öðlaðist gildi að því er Ísland varðar 7. desember 2006.
Ákvörðunin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 14. desember 2006.
Valgerður Sverrisdóttir.
Grétar Már Sigurðsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|