Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 631/2023

Nr. 631/2023 15. júní 2023

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1084/2020, um hlutdeildarlán, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað„sex“ í 1. málsl. kemur: tólf.
  2. 2. málsl. orðast svo: Miða skal við að úthlutun fari að jafnaði fram mánaðarlega og að sex úthlutanir fari fram á tímabilinu 1. janúar til 30. júní og sex úthlutanir á tímabilinu 1. júlí til 31. desember ár hvert.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðanna „7.908.000 kr.“, „11.046.000 kr.“ og „1.632.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 8.748.000 kr.; 12.219.000 kr.; og 1.805.000 kr.
  2. Í stað fjárhæðanna „5.249.000 kr.“, „7.343.000 kr.“ og „1.632.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 5.807.000 kr.; 8.123.000 kr.; og 1.805.000 kr.

 

3. gr.

2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Hámarksverð hagkvæmra íbúða skal miðast við fermetra- og herbergjafjölda íbúðar þannig að bæði skilyrðin séu uppfyllt innan viðkomandi verðflokks og er sem hér segir:

  1. Á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Reykjavíkurborg og Seltjarnarnesbæ:
Herbergjafjöldi Fermetrar Hámarksverð
Að lágmarki stúdíóíbúð Að lágmarki 30 m² 38.500.000 kr.
Að lágmarki stúdíóíbúð Að lágmarki 40 m² 45.000.000 kr.
Að lágmarki 1 svefnherbergi Að lágmarki 50 m² 51.500.000 kr.
Að lágmarki 1 svefnherbergi Að lágmarki 60 m² 58.000.000 kr.
Að lágmarki 2 svefnherbergi Að lágmarki 70 m² 62.500.000 kr.
Að lágmarki 2 svefnherbergi Að lágmarki 80 m² 69.000.000 kr.
Að lágmarki 3 svefnherbergi Að lágmarki 90 m² 74.000.000 kr.
Að lágmarki 4 svefnherbergi Að lágmarki 100 m² 80.500.000 kr.

 

  1. Á vaxtarsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins, þ.e. í Akraneskaupstað, Akureyrarbæ, Grinda­víkur­bæ, Hveragerðisbæ, Hörgársveit, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Sveitarfélaginu Árborg, Sveitarfélaginu Vogum og Sveitarfélaginu Ölfusi:
Herbergjafjöldi Fermetrar Hámarksverð
Að lágmarki stúdíóíbúð Að lágmarki 30 m² 32.500.000 kr.
Að lágmarki stúdíóíbúð Að lágmarki 40 m² 38.000.000 kr.
Að lágmarki 1 svefnherbergi Að lágmarki 50 m² 43.000.000 kr.
Að lágmarki 1 svefnherbergi Að lágmarki 60 m² 48.500.000 kr.
Að lágmarki 2 svefnherbergi Að lágmarki 70 m² 52.500.000 kr.
Að lágmarki 2 svefnherbergi Að lágmarki 80 m² 58.000.000 kr.
Að lágmarki 3 svefnherbergi Að lágmarki 90 m² 62.500.000 kr.
Að lágmarki 4 svefnherbergi Að lágmarki 100 m² 67.500.000 kr.

 

  1. Á landsbyggðinni utan vaxtarsvæða:
Herbergjafjöldi Fermetrar Hámarksverð
Að lágmarki stúdíóíbúð Að lágmarki 30 m² 30.000.000 kr.
Að lágmarki stúdíóíbúð Að lágmarki 40 m² 35.000.000 kr.
Að lágmarki 1 svefnherbergi Að lágmarki 50 m² 40.000.000 kr.
Að lágmarki 1 svefnherbergi Að lágmarki 60 m² 45.000.000 kr.
Að lágmarki 2 svefnherbergi Að lágmarki 70 m² 48.500.000 kr.
Að lágmarki 2 svefnherbergi Að lágmarki 80 m² 53.500.000 kr.
Að lágmarki 3 svefnherbergi Að lágmarki 90 m² 57.500.000 kr.
Að lágmarki 4 svefnherbergi Að lágmarki 100 m² 62.000.000 kr.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. og 6. mgr. 29. gr. a. og 1. og. 3. tölul. 1. mgr. 29. gr. d. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, öðlast þegar gildi og skal gilda um hlutdeildarlán sem úthlutað er frá og með gildistökudegi reglugerðarinnar, 21. júní 2023.

 

Innviðaráðuneytinu, 15. júní 2023.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hermann Sæmundsson.


B deild - Útgáfud.: 20. júní 2023