1. gr.
Reglugerð þessi gildir um veiðar með tilteknum veiðarfærum á grunnslóð við Ísland. Reglugerðin gildir ekki um handfæraveiðar á makríl. Kort sem sýnir veiðisvæði er birt sem fylgiskjal með reglugerðinni.
2. gr.
Út af Álftanesi er óheimilt að stunda veiðar með línu, á tímabilinu frá og með 15. janúar til og með 20. febrúar, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°10,00´N – 22°00,00´V
- 64°10,00´N – 22°03,20´V
- 64°09,50´N – 22°05,50´V
- 64°08,50´N – 22°06,70´V
- 64°08,60´N – 22°08,50´V
- 64°08,00´N – 22°10,00´V
- 64°07,00´N – 22°12,00´V
- 64°02,50´N – 22°07,00´V
3. gr.
Út af Kjalarnesi er óheimilt að stunda veiðar með línu, á tímabilinu frá og með 15. janúar til og með 20. febrúar, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°15,40´N – 21°51,50´V
- 64°13,00´N – 22°02,00´V
- 64°17,50´N – 22°09,00´V
- 64°19,00´N – 21°55,00´V
4. gr.
Vestur af Akranesi er óheimilt að stunda veiðar með línu og handfærum, á tímabilinu frá og með 1. maí til og með 15. júlí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°22,00´N – 22°14,00´V
- 64°22,00´N – 22°05,00´V
- 64°17,00´N – 22°07,00´V
- 64°17,00´N – 22°16,00´V
5. gr.
Á Búðagrunni er óheimilt að stunda veiðar með línu, á tímabilinu frá og með 1. júlí til og með 31. janúar, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°44,00´N – 23°39,00´V
- 64°40,00´N – 22°52,00´V
- 64°34,00´N – 22°56,00´V
- 64°30,00´N – 22°28,00´V
- 64°46,00´N – 22°24,00´V
- 64°49,00´N – 23°33,00´V
6. gr.
Út af Búlandshöfða er óheimilt að stunda veiðar með línu, á tímabilinu frá og með 1. júlí til og með 31. janúar, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°57,00´N – 23°29,00´V
- 65°01,00´N – 23°10,00´V
- 65°09,00´N – 23°16,00´V
- 65°06,50´N – 23°24,00´V
- 65°04,00´N – 23°23,00´V
7. gr.
Við Breka er óheimilt að stunda veiðar með línu, á tímabilinu frá og með 1. júlí til og með 31. janúar, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 65°07,00´N – 23°14,50´V
- 65°13,00´N – 22°53,00´V
- 65°16,00´N – 22°57,00´V
- 65°11,00´N – 23°17,00´V
8. gr.
Á norðanverðum Breiðafirði er óheimilt að stunda veiðar með línu allt árið á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 65°30,20´N – 24°32,10´V (Bjargtangar)
- 65°24,90´N – 23°57,14´V (Skorarviti)
- 65°15,00´N – 23°17,00´V
- 65°10,50´N – 23°32,50´V
- 65°12,50´N – 23°36,00´V
- 65°11,38´N – 23°47,90´V
- 65°10,00´N – 23°56,00´V
- 65°20,00´N – 24°16,50´V
- 65°20,00´N – 24°31,00´V
- 65°23,00´N – 24°44,00´V
Þó eru veiðar með línu heimilar á tímabilinu 15. mars til 31. maí vestan línu sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 65°30,00´N – 24°14,00´V
- 65°22,00´N – 24°19,00´V
- 65°20,00´N – 24°21,20´V
9. gr.
Á norðanverðum Breiðafirði er óheimilt að stunda veiðar með handfærum, á tímabilinu frá og með 1. júlí til og með 31. ágúst, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 65°30,20´N – 24°32,10´V
- 65°26,60´N – 24°37,90´V
- 65°17,00´N – 23°47,00´V
- 65°25,00´N – 23°42,29´V
10. gr.
Út af Skálavík er óheimilt að stunda veiðar með línu, á tímabilinu frá og með 1. október til og með 31. desember, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 66°14,00´N – 23°49,00´V
- 66°16,50´N – 23°40,00´V
- 66°15,50´N – 23°30,00´V
- 66°10,50´N – 23°13,00´V
- 66°09,50´N – 23°15,00´V
- 66°07,00´N – 23°39,00´V
11. gr.
Á vestanverðum Húnaflóa er óheimilt að stunda veiðar með línu, á tímabilinu frá og með 1. október til og með 31. maí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 65°59,80´N – 21°19,00´V
- 66°01,00´N – 21°12,60´V
- 66°12,00´N – 21°15,60´V
- 66°14,00´N – 21°17,10´V
- 66°14,50´N – 21°55,35´V
12. gr.
Norður af Vatnsnesi er óheimilt að stunda veiðar með línu og handfærum, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 31. júlí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 65°48,30´N – 20°50,30´V
- 65°45,00´N – 20°51,00´V
- 65°45,00´N – 20°48,00´V
- 65°48,30´N – 20°47,20´V
13. gr.
Við norðanverðan Skaga er óheimilt að stunda veiðar með línu og handfærum, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 31. júlí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 66°08,00´N – 20°29,50´V
- 66°08,00´N – 20°16,00´V
- 66°06,20´N – 20°16,00´V
- 66°04,00´N – 20°25,00´V
- 66°04,00´N – 20°28,20´V
14. gr.
Á Fljótagrunni er óheimilt að stunda veiðar með línu allt árið á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 66°07,00´N – 19°05,00´V
- 66°07,00´N – 19°34,00´V
- 66°14,00´N – 19°26,00´V
- 66°14,00´N – 19°13,00´V
- 66°11,00´N – 18°58,00´V
15. gr.
Út og austur af Gjögrum er óheimilt að stunda veiðar með handfærum, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 31. júlí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 66°05,00´N – 18°18,00´V
- 66°05,00´N – 18°21,00´V
- 66°09,00´N – 18°21,00´V
- 66°12,50´N – 18°18,50´V
- 66°10,50´N – 18°06,50´V
- 66°11,00´N – 17°50,50´V
- 66°08,00´N – 17°50,00´V
- 66°07,50´N – 17°57,00´V
- 66°10,00´N – 18°17,00´V
16. gr.
Norðan við Langanes er óheimilt að stunda veiðar með handfærum, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 31. júlí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 66°25,20´N – 15°23,75´V
- 66°25,50´N – 15°13,50´V
- 66°22,30´N – 15°13,25´V
- 66°21,00´N – 15°06,50´V
- 66°24,50´N – 14°54,70´V
- 66°23,50´N – 14°51,70´V
- 66°05,50´N – 15°24,00´V
- 66°11,00´N – 15°30,00´V
- 66°20,00´N – 15°19,00´V
17. gr.
Við Glettinganes er óheimilt að stunda veiðar með handfærum, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 31. júlí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 65°33,00´N – 13°40,50´V
- 65°33,00´N – 13°38,90´V
- 65°31,70´N – 13°35,00´V
- 65°23,00´N – 13°35,00´V
- 65°21,55´N – 13°39,10´V
- 65°21,60´N – 13°42,60´V
18. gr.
Fyrir sunnanverðum Austfjörðum er óheimilt að stunda veiðar með handfærum, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 15. júlí, á svæði sem markast af eftirfarandi hnitum:
- 64°55,00´N – 13°46,00´V
- 64°54,00´N – 13°36,00´V
- 64°40,10´N – 13°57,34´V
- 64°41,00´N – 14°10,00´V
- 64°42,00´N – 14°13,00´V
19. gr.
Viðurlög.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.
20. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2021.
Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 1044/2012, um bann við línuveiðum á norðanverðum Faxaflóa, reglugerð nr. 810/2009, um bann við línuveiðum á sunnanverðum Breiðafirði, reglugerð nr. 193/2007, um bann við línuveiðum á norðanverðum Breiðafirði, reglugerð nr. 693/2007, um bann við handfæraveiðum suður af Látrabjargi, reglugerð nr. 970/2010, um bann við línuveiðum á Húnaflóa, reglugerð nr. 709/2015, um bann við línuveiðum á Fljótagrunni og reglugerð nr. 588/2015, um bann við handfæraveiðum fyrir sunnanverðum Austfjörðum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. október 2019.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|